Eftirlifandi maka dæmdar miskabætur

By Guðbrandur Jóhannesson
Dec 14, 2023

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag í máli S-3865/2023 eftirlifandi maka (umbj. stofunnar), miskabætur úr hendi strætóbílstjóra, sem ekið hafði á eiginkonu hans með þeim afleiðingum að hún lést. 

Ágreiningur var uppi hvort uppfyllt væru skilyrði til útgreiðslu skaðabóta skv. 2. mgr. 26. gr. skbl, en til þess þarf háttsemi tjónvalds að fela í sér stórkostlegt gáleysi. Í stuttu máli þá taldi héraðsdómur að aksturslag strætóbílstjórans  hefði falið í sér stórkostlegt gáleysi og dæmdi umbj. stofunnar miskabætur. 

Guðbrandur Jóhannnesson hrl. flutti málið í héraði.